Nokia 5228 - Uppsetning forrita

background image

Uppsetning forrita

Hægt er að flytja uppsetningarskrár í tækið úr samhæfðri tölvu, hlaða þeim niður

þegar vafrað er eða fá þær sendar sem margmiðlunarskilaboð, sem

tölvupóstsviðhengi eða nota aðrar tengiaðferðir, svo sem Bluetooth.
Hægt er að nota Nokia Application Installer í Nokia Ovi Suite til að setja upp forrit í

tækinu.
Táknin í Forritastjórnun sýna eftirfarandi:

SIS- eða SISX-forrit

Önnur forrit

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

96

background image

Java-forrit

smáforrit

forrit sett upp á minniskortinu

Mikilvægt: Aðeins skal setja upp og nota forrit og annan hugbúnað frá

traustum aðilum, t.d. forrit með Symbian Signed eða forrit sem hafa verið prófuð

með Java Verified™.
Fyrir uppsetningu geturðu gert eftirfarandi:
● Til að skoða gerð forritsins, útgáfunúmer og seljanda eða framleiðanda forritsins

skaltu velja Valkostir > Skoða upplýsingar.
Til að skoða upplýsingar um öryggisvottorð forritsins skaltu velja

Upplýsingar: > Vottorð: > Skoða upplýsingar. Hægt er að stjórna notkun

stafrænna vottorða í Vottorðastjórnun.

● Ef þú setur upp skrá sem inniheldur uppfærslu eða endurbætur á forriti sem þegar

er uppsett geturðu aðeins endurheimt upphaflega forritið ef annað hvort

upphaflega uppsetningarskráin er fyrir hendi, eða öryggisafrit af öllum

hugbúnaðarpakkanum sem var fjarlægður. Til að endurheimta upphaflega

forritið skaltu fyrst fjarlægja forritið og síðan setja það upp aftur úr upphaflegu

uppsetningarskránni eða öryggisafritinu.
Nauðsynlegt er að hafa JAR-skrá til að setja upp Java-forrit. Ef skrána vantar getur

tækið beðið þig um að hlaða henni niður. Ef enginn aðgangsstaður er tilgreindur

fyrir forritið biður tækið þig um að velja aðgangsstað.

Hafðu eftirfarandi í huga þegar þú setur upp forrit:
1. Til að staðsetja uppsetningarskrá velurðu Valmynd > Stillingar og

Forritastjórnun. Að öðrum kosti skaltu leita að uppsetningarskrám með

Skráarstjóra eða velja Skilaboð > Innhólf og opna skilaboð sem innihalda

uppsetningarskrá.

2. Í Forritastjórnun velurðu Valkostir > Setja upp. Í öðrum forritum velurðu

uppsetningarskrána til að hefja uppsetninguna.

Önnur forrit

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

97

background image

Meðan á uppsetningu stendur birtir tækið upplýsingar um stöðu

uppsetningarinnar. Ef þú setur upp forrit án rafrænnar undirskriftar eða vottorðs

birtir tækið viðvörun. Þú skalt aðeins halda áfram að setja upp forritið ef þú ert

viss um uppruna þess og innihald.

Til að ræsa uppsett forrit finnurðu það í valmyndinni og velur það. Ef forritið er ekki

með sjálfgefna möppu skilgreinda er það sett upp í möppunni Uppsett forrit á

aðalvalmyndinni.
Til að sjá hvaða hugbúnaðarpakkar hafa verið settir upp eða fjarlægðir og hvenær

það var gert skaltu velja Valkostir > Skoða notkunarskrá.

Mikilvægt: Tækið styður aðeins eitt vírusvarnarforrit í einu. Notkun fleiri en

eins vírusvarnarforrits getur haft áhrif á afkastagetu og virkni tækisins, eða valdið

því að það virki ekki.
Uppsetningarskrár (.sis, .sisx) eru áfram í minni tækisins eftir að forrit þeirra hafa

verið sett upp á samhæfu minniskorti. Skrárnar geta tekið mikið minni og valdið

því að ekki sé hægt að vista aðrar skrár. Til að losa um minni skaltu nota Nokia Ovi

Suite til að taka öryggisafrit af uppsetningarskrám og setja afritið á samhæfa tölvu.

Að því loknu skaltu nota Skráarstjórann til að eyða uppsetningarskránum úr minni

tækisins. Ef .sis-skráin hefur verið send sem viðhengi í skilaboðum skal eyða

skilaboðunum úr innhólfinu.