Myndskeið spiluð
Veldu Valmynd > Forrit > RealPlayer.
Til að spila myndskeið velurðu Myndskeið og tiltekið myndskeið.
Til að sjá lista yfir nýlega spilaðar skrár velurðu Nýlega spilað á aðalskjá forritsins.
Á listanum yfir myndskeið flettirðu að einu þeirra, velur Valkostir og úr eftirfarandi:
● Nota myndskeið — Til að tengja myndskeið við tengilið eða stilla það sem
hringitón.
● Merkja/afmerkja — Til að merkja hluti á listanum til sendingar eða eyða
mörgum hlutum samtímis.
● Skoða upplýsingar — Til að skoða upplýsingar um tiltekið atriði, svo sem snið,
upplausn og tímalengd.
● Stillingar — Til að breyta stillingum fyrir hreyfimyndaspilun og straumspilun.
Eftirfarandi tákn kunna að vera á tækjastikunni í Myndskeiðum, Nýlega spiluðum
skrárm og Straumspilunartenglum:
●
Senda — Til að senda myndskeið eða straumspilunartengil.
●
Spila — Til að spila myndskeiðið eða myndstrauminn.
●
Eyða — Til að eyða myndskeiði eða straumspilunartengli.
●
Fjarlægja — Til að fjarlægja skrá af nýlega spiluðum lista.