
Myndir og hreyfimyndir flokkaðar
Veldu Valmynd > Gallerí.
Veldu Myndir/myndsk. > Valkostir og svo úr eftirfarandi:
● Möppuvalkostir — Til að færa skrár í möppur velurðu Færa í möppu. Ný mappa
er búin til með því að velja Ný mappa.
● Skipuleggja — Til að afrita skrár í möppur velurðu Afrita. Til að færa skrár í
möppur velurðu Færa.
● Birta eftir — Til að birta myndir eftir dagsetningu, heiti eða stærð.
12. Nokia Myndefnisþjónusta
Með Kvikmyndabankanum (sérþjónusta) er hægt að hlaða niður og straumspila
myndskeið frá samhæfum kvikmyndaveitum á netinu með því að nota
pakkagagnatengingu. Einnig er hægt að flytja myndskeið úr samhæfri tölvu í tækið
og skoða þau í Video centre.
Það getur falið í sér stórar gagnasendingar um farsímakerfi þjónustuveitunnar að
nota aðgangsstaði fyrir pakkagögn til að hlaða niður hreyfimyndum. Upplýsingar
um gagnaflutningsgjöld fást hjá þjónustuveitum.
Tækinu getur fylgt fyrirfram valin þjónusta.
Þjónustuveitur bjóða ýmist upp á ókeypis efni eða taka gjald fyrir. Kannaðu verðið
hjá þjónustunni eða þjónustuveitunni.
Skoðun og niðurhal myndskeiða
Tenging við kvikmyndaveitu
1. Veldu Valmynd > Forrit > Kvikm.banki.
2. Til að tengjast þjónustu eða setja upp myndefnisþjónustu velurðu Bæta við
nýrri þjónustu og myndefnisþjónustu af vörulistanum.