Myndir og myndskeið skoðuð
Veldu Valmynd > Gallerí og Myndir/myndsk..
Myndum, hreyfimyndum og möppum er raðað eftir dagsetningu og tíma. Strjúktu
upp eða niður til að skoða skrárnar.
Til að opna skrá velurðu hana af listanum. Þegar mynd er skoðuð er hægt að skoða
næstu eða fyrri mynd með því að strjúka myndinni til vinstri eða hægri. Notaðu
hljóðstyrkstakka tækisins til að auka aðdrátt myndar.
Veldu Valkostir og svo úr eftirfarandi:
● Breyta — Til að breyta myndskeiði eða mynd.
● Nota skrá — Til að nota myndina sem veggfóður á heimaskjánum velurðu Sem
veggfóður.
Til að gera mynd að almennri hringimynd velurðu Sem myndhringingu.
Til að gera mynd að hringimynd tengiliðar velurðu Setja við tengilið.
Til að gera myndskeiðið að hringitón velurðu Nota sem hringitón.
Til að gera myndskeiðið að hringitón fyrir tengilið velurðu Setja við tengilið.
Tækjastikan auðveldar þér að velja algengar aðgerðir með myndum, myndskeiðum
og möppum.
Hægt er að velja úr eftirfarandi atriðum á tækjastikunni:
●
Senda — Til að senda tiltekna mynd eða myndskeið.
●
Breyta — Til að breyta tiltekinni mynd eða myndskeiði.
●
Eyða — Til að eyða tiltekinni mynd eða myndskeiði.
Gallerí
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
75