
Þjónusta
Ef þú vilt læra meira um hvernig nota á vöruna eða þú ert ekki viss um hvernig tækið
virkar geturðu fundið nánari upplýsingar á slóðinni www.nokia.com/support eða á
vefsvæði Nokia í heimalandi þínu, www.nokia.mobi/support (í farsíma) í
hjálparforriti tækisins eða notendahandbókinni.
Ef þetta leysir ekki vandann skaltu reyna eitt af eftirfarandi:
● Endurræstu tækið: slökktu á tækinu og taktu rafhlöðuna úr því. Eftir u.þ.b.
mínútu skaltu setja rafhlöðuna aftur á sinn stað og kveikja á tækinu.
● Settu aftur upp upprunalegu stillingarnar eins og lýst er í notendahandbókinni.
Skjölum og skrám verður eytt við endurstillingu og því skaltu taka afrit fyrst.
● Uppfærðu hugbúnað tækisins reglulega eins og útskýrt er í notandahandbókinni
til að fá bestu afköst og nýja eiginleika.
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
10

Ef þetta leysir ekki vandann skaltu hafa samband við Nokia. Sjá www.nokia.com/
repair. Ávallt skal taka öryggisafrit af gögnum í tækinu áður en það er sent í viðgerð.