Nokia 5228 - Hjálpartexti tækisins

background image

Hjálpartexti tækisins

Í tækinu eru leiðbeiningar um hvernig nota eigi forritin sem fylgja því.
Til að opna hjálpartexta í aðalvalmyndinni velurðu Valmynd > Hjálp og forritið

sem þú vilt fá leiðbeiningar um.
Þegar forrit er opið skaltu velja Valkostir > Notendahandbók til að skoða

viðkomandi hjálpartexta.
Til að breyta stærð hjálpartextans á meðan þú ert að lesa leiðbeiningarnar velurðu

Valkostir > Minnka leturstærð eða Auka leturstærð.
Í lok hvers hjálpartexta eru tenglar að svipuðu efni. Ef þú velur undirstrikað orð

birtist stutt útskýring. Hjálpartextar nota eftirfarandi vísa: Tengill að tengdu efni.

Tengill að forritinu sem fjallað er um.

Þegar þú lest fyrirmælin geturðu skipt á milli hjálpartexta og forrits sem er opið í

bakgrunni með því að velja Valkostir > Sýna opin forrit og viðeigandi forrit.