Myndatöku- og upptökustillingar
Ef þú vilt að skjámyndin fyrir myndatöku- og upptökustillingar opnist áður en mynd
eða hreyfimynd er tekin skaltu velja Valmynd > Forrit > Myndavél og .
Skjámyndin fyrir myndatöku og upptökustillingar er með flýtivísum til að velja ýmsa
hluti og stillingar áður en mynd eða hreyfimynd er tekin.
Þegar myndavélinni er lokað eru sjálfgefnar stillingar hennar valdar aftur.
Veldu úr eftirfarandi:
— Veldu umhverfið.
eða
— Skiptu milli hreyfimynda- og kyrrmyndastillingar.
Myndavél
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
69
eða — Sýndu eða feldu myndgluggatöflu (aðeins fyrir kyrrmyndir).
— Til að kveikja á sjálfvirku myndatökunni (aðeins fyrir kyrrmyndir).
— Til að ræsa myndaraðarstillinguna (aðeins kyrrmyndir).
— Opnaðu Gallerí.
Myndastillingar:
— Veldu litatón.
— Til að stilla ljósgjafann. Veldu birtuskilyrðin. Þetta gerir myndavélinni kleift
að endurskapa liti af meiri nákvæmni.
— Til að stilla lýsingu (aðeins fyrir kyrrmyndir). Ef þú ert að taka mynd af dökkum
hlut með mjög ljósum bakgrunni, t.d. snjó, skaltu stilla lýsinguna á +1 eða +2 vegna
birtunnar í bakgrunninum. Stilltu á -1 eða -2 ef um er að ræða ljósan hlut með
dökkum bakgrunni.
— Til að stilla ljósnæmi (aðeins fyrir kyrrmyndir). Auka skal ljósnæmi þegar birta
er lítil til að myndirnar verði ekki of dökkar og óskýrar. Þegar ljósnæmi er aukið
kann myndsuð einnig að aukast.
— Til að stilla birtuskil (aðeins fyrir kyrrmyndir). Til að stilla muninn á ljósustu
og dekkstu hlutum myndarinnar.
— Stilltu skerpu (aðeins fyrir kyrrmyndir).
Skjárinn breytist eftir því hvaða stillingar eru valdar.
Myndatökustillingarnar gilda fyrir hverja einstaka myndatöku. Ef skipt er úr einni
stöðu í aðra færast stillingarnar ekki í tilgreint horf.
Ef ný umhverfisstilling er valin kemur hún í stað myndatökustillinganna. Hægt er
að breyta myndatökustillingunum eftir að umhverfi hefur verið valið, ef þörf krefur.
Það getur tekið lengri tíma að vista myndir ef stillingum fyrir stækkun, lýsingu eða
liti er breytt.