Nokia 5228 - Mail for Exchange

background image

Mail for Exchange

Með Mail for Exchange geturðu fengið vinnupóstinn þinn sendan í tækið. Þú getur

lesið og svarað tölvupóstinum, skoðað og breytt samhæfum viðhengjum, séð

dagbókarupplýsingar, móttekið og svarað fundarboðum, tímasett fundi og skoðað,

sett inn og breytt upplýsingum um tengiliði.

ActiveSync
Notkun á Mail for Exchange forrit takmarkast við samkeyrslu PIM-upplýsinga í lofti

milli Nokia-tækisins og viðurkennds Microsoft Exchange þjóns.
Mail for Exchange er einungis hægt að setja upp ef fyrirtæki þitt er með Microsoft

Exchange Server. Auk þess verður kerfisstjóri fyrirtækisins að virkja Mail for

Exchange fyrir reikninginn þinn.
Áður en hafist er handa við uppsetningu á Mail for Exchange skaltu tryggja að þú

sért með eftirfarandi:
● Auðkenni fyrir fyrirtækistölvupóst
● Notandanafn þitt á fyrirtækisnetinu
● Lykilorð þitt á fyrirtækisnetinu
● Lénsheiti netsins (hafðu samband við tölvudeild fyrirtækisins)
● Miðlaraheiti þitt fyrir Mail for Exchange (hafðu samband við tölvudeild

fyrirtækisins)

Skilaboð

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

55

background image

Þú þarft hugsanlega að færa inn aðrar upplýsingar til viðbótar þeim sem áður er

lýst, allt eftir uppsetningu Mail for Exchange-miðlara fyrirtækisins. Ef þú veist ekki

réttar upplýsingar skaltu hafa samband við tölvudeild fyrirtækisins.
Hugsanlega er nauðsynlegt að nota læsingarkóðann með Mail for Exchange.

Sjálfgefinn læsingarkóði tækisins er 12345, en hugsanlega hefur tæknistjóri

fyrirtækisins breytt honum fyrir þig.
Þú getur opnað og breytt sniði og stillingum Mail for Exchange í stillingum

Skilaboða.