Tölvupósti eytt
Veldu Valmynd > Skilaboð og pósthólf.
Til að eyða tölvupósti úr tækinu, en geyma hann samt áfram í ytra pósthólfinu,
skaltu velja Valkostir > Eyða > Síma eingöngu.
Tækið birtir tölvupóstfyrirsagnirnar í ytra pósthólfinu. Það merkir að þótt efni
tölvupósts sé eytt er fyrirsögnin áfram í tækinu. Viljir þú líka eyða fyrirsögninni
verður þú að vera tengdur við miðlarann þegar skilaboðunum er eytt úr tækinu og
ytra pósthólfinu. Ef engin tenging er við miðlarann er fyrirsögninni eytt þegar þú
kemur á tengingu úr tækinu við ytra pósthólfið á ný til að uppfæra stöðuna.
Skilaboð
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
54
Til að eyða tölvupósti úr tækinu og ytra pósthólfinu skaltu velja Valkostir > Eyða >
Síma og miðlara.
Til að hætta við að eyða merktum tölvupósti úr tækinu og af miðlara þegar tengingu
er næst komið á ( ) velurðuValkostir > Afturkalla.