Stillingar margmiðlunarskilaboða
Veldu Valmynd > Skilaboð og Valkostir > Stillingar >
Margmiðlunarskilaboð.
Veldu úr eftirfarandi:
● Stærð myndar — Tilgreina skal stærð myndar í margmiðlunarskilaboðum.
● MMS-gerð — Ef þú velur Með viðvörunum lætur tækið þig vita ef þú reynir að
senda skilaboð sem ekki er víst að móttökutæki styðji. Ef þú velur Takmörkuð
kemur tækið veg fyrir að þú sendir óstudd skilaboð. Til að geta sett efni inn í
skilaboð án tilkynninga velurðu Laust.
● Aðgangsstaður í notkun — Veldu hvaða aðgangsstaður er notaður sem
ákjósanleg tenging.
● Móttaka margmiðlunar — Veldu hvernig þú vilt taka á móti skilaboðum, ef sú
þjónusta er í boði. Til að taka sjálfkrafa á móti skilaboðum í heimasímkerfinu
skaltu velja Sjálfv. í heimakerfi. Utan heimasímkerfisins mun tilkynning berast
um að það séu ósótt skilaboð í skilaboðamiðstöðinni. Ef þú velur Alltaf sjálfvirk
mun tækið sjálfkrafa koma á virkri pakkagagnatengingu til að sækja skilaboðin
bæði innan og utan heimasímkerfisins. Veldu Handvirkt val til að sækja
margmiðlunarskilaboð alltaf handvirkt eða Óvirk til að loka fyrir móttöku
margmiðlunarskilaboða. Ekki er víst að sjálfvirk móttaka sé í boði á öllum
svæðum.
● Leyfa nafnlaus skilaboð — Hafna skilaboðum frá nafnlausum sendendum.
● Fá auglýsingar — Taka á móti auglýsingum í formi margmiðlunarskilaboða
(sérþjónusta).
● Fá tilkynningar — Sýna stöðu sendra skilaboða í notkunarskrá (sérþjónusta).
● Neita sendingu tilk. — Loka fyrir að tækið sendi skilatilkynningar fyrir móttekin
skilaboð.
● Gildistími skilaboða — Veldu hve lengi skilaboðamiðstöðin á að reyna að senda
skilaboð frá þér ef fyrsta sending þeirra mistekst (sérþjónusta). Ef ekki er hægt
að senda skilaboðin innan tímafrestsins er skilaboðunum eytt úr
skilaboðamiðstöðinni.
Símkerfisstuðningur þarf að vera fyrir hendi til að hægt sé að fá staðfestingu á því
hvort send skilaboð hafa verið móttekin eða lesin. Allt eftir símkerfinu og öðrum
Skilaboð
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
58
aðstæðum hverju sinni getur verið að þessar upplýsingar séu ekki alltaf
áreiðanlegar.