Nokia 5228 - Stillingar margmiðlunarskilaboða

background image

Stillingar margmiðlunarskilaboða

Veldu Valmynd > Skilaboð og Valkostir > Stillingar >

Margmiðlunarskilaboð.
Veldu úr eftirfarandi:
Stærð myndar — Tilgreina skal stærð myndar í margmiðlunarskilaboðum.

MMS-gerð — Ef þú velur Með viðvörunum lætur tækið þig vita ef þú reynir að

senda skilaboð sem ekki er víst að móttökutæki styðji. Ef þú velur Takmörkuð

kemur tækið veg fyrir að þú sendir óstudd skilaboð. Til að geta sett efni inn í

skilaboð án tilkynninga velurðu Laust.

Aðgangsstaður í notkun — Veldu hvaða aðgangsstaður er notaður sem

ákjósanleg tenging.

Móttaka margmiðlunar — Veldu hvernig þú vilt taka á móti skilaboðum, ef sú

þjónusta er í boði. Til að taka sjálfkrafa á móti skilaboðum í heimasímkerfinu

skaltu velja Sjálfv. í heimakerfi. Utan heimasímkerfisins mun tilkynning berast

um að það séu ósótt skilaboð í skilaboðamiðstöðinni. Ef þú velur Alltaf sjálfvirk

mun tækið sjálfkrafa koma á virkri pakkagagnatengingu til að sækja skilaboðin

bæði innan og utan heimasímkerfisins. Veldu Handvirkt val til að sækja

margmiðlunarskilaboð alltaf handvirkt eða Óvirk til að loka fyrir móttöku

margmiðlunarskilaboða. Ekki er víst að sjálfvirk móttaka sé í boði á öllum

svæðum.

Leyfa nafnlaus skilaboð — Hafna skilaboðum frá nafnlausum sendendum.

Fá auglýsingar — Taka á móti auglýsingum í formi margmiðlunarskilaboða

(sérþjónusta).

Fá tilkynningar — Sýna stöðu sendra skilaboða í notkunarskrá (sérþjónusta).

Neita sendingu tilk. — Loka fyrir að tækið sendi skilatilkynningar fyrir móttekin

skilaboð.

Gildistími skilaboða — Veldu hve lengi skilaboðamiðstöðin á að reyna að senda

skilaboð frá þér ef fyrsta sending þeirra mistekst (sérþjónusta). Ef ekki er hægt

að senda skilaboðin innan tímafrestsins er skilaboðunum eytt úr

skilaboðamiðstöðinni.

Símkerfisstuðningur þarf að vera fyrir hendi til að hægt sé að fá staðfestingu á því

hvort send skilaboð hafa verið móttekin eða lesin. Allt eftir símkerfinu og öðrum

Skilaboð

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

58

background image

aðstæðum hverju sinni getur verið að þessar upplýsingar séu ekki alltaf

áreiðanlegar.