Nokia 5228 - Símtalsstillingar

background image

Símtalsstillingar

Símtalsstillingar

Með símtalsstillingum geturðu valið tilgreindar stillingar í tækinu þínu.
Veldu Valmynd > Stillingar og Hringistillingar > Símtöl.

Stillingar

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

109

background image

Veldu úr eftirfarandi:
Senda mitt númer — Veldu til að þeir sem þú hringir í sjái símanúmerið þitt.

Ef þú vilt nota stillingarnar sem þjónustuveitan þín hefur samþykkt skaltu velja

Stillt af símkerfi (sérþjónusta).

Símtal í bið — Láttu tækið gera þér viðvart ef hringt er í þig á meðan þú ert að

tala í símann (sérþjónusta) eða athugaðu hvort sú aðgerð er virk.

Hafna símtali með skilab. — Sendu textaskilaboð þegar þú hafnar símtali og

greindu þeim sem hringdi frá því hvers vegna þú gast ekki svarað.

Texti skilaboða — Skrifaðu stöðluð textaskilaboð sem eru send þegar þú hafnar

símtali.

Sjálfvirkt endurval — Láttu tækið gera allt að tíu tilraunir til að hringja aftur í

númer sem ekki náðist samband við. Ýttu á hætta-takkann til að slökkva á

sjálfvirka endurvalinu.

Sýna lengd símtala — Birta lengd símtals meðan á því stendur.

Samantekt símtals — Birta lengd símtals eftir að því lýkur.

Hraðval — Kveikt á hraðvali.

Takkasvar — Kveikt á takkasvari.

Lína í notkun — Þessi stilling (sérþjónusta) sést aðeins ef SIM-kortið styður tvær

símalínur, þ.e. tvö númer í áskrift. Veldu hvaða símalínu á að nota til að hringja

og senda textaskilaboð. Það er hægt að svara símtölum á báðum línum, burtséð

frá því hvor línan hefur verið valin. Ef þú velur Lína 2 en hefur ekki gerst áskrifandi

að þessari sérþjónustu geturðu ekki hringt úr tækinu. Þegar lína 2 er valin birtist

táknið þegar tækið er í biðstöðu.

Línuskipting — Til að hindra að skipt sé á milli lína (sérþjónusta), ef SIM-kortið

styður það. Til að breyta þessari stillingu þarftu að hafa PIN2-númerið.

Mismunandi getur verið hvaða valkostir eru í boði.