Minniskort fjarlægt
Mikilvægt: Ekki fjarlægja minniskortið þegar verið er að nota það í aðgerð.
Það gæti skaðað kortið og tækið og skemmt gögn sem vistuð eru á því.
1. Áður en þú fjarlægir kortið, þegar kveikt er á tækinu, skaltu ýta á rofann og velja
Fjarlægja minniskort.
2. Þegar Fjarlægja minniskort? Einhverjum forritum verður lokað. birtist
skaltu velja Já.
3. Þegar Fjarlægðu minniskort og ýttu á 'Í lagi' birtist skaltu opna
minniskortsraufina.
4. Ýttu á minniskortið til að losa það úr raufinni.
Tækið þitt
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
32
5. Fjarlægðu minniskortið. Ef kveikt er á tækinu skaltu velja Í lagi.
4. Hringt úr tækinu
Snertiskjár og símtöl
Tækið er með nálægðarnema. Til að auka endingu rafhlöðunnar og til að koma í
veg fyrir að eitthvað sé valið óvart er snertiskjárinn óvirkur á meðan símtal er í
gangi, þegar tækinu er haldið upp að eyranu.
Ekki þekja fjarlægðarnemann, t.d. með plasthlíf eða límbandi.
Símtöl
1. Á heimaskjánum velurðu Sími til að opna númeravalið og slærð inn svæðis- og
símanúmerið. Tölu er eytt með því að velja
.
Ýttu tvisvar sinnum á * til að fá fram + merkið ef þú vilt hringja til útlanda (kemur
í stað alþjóðlega svæðisnúmersins) og sláðu inn landsnúmerið, svæðisnúmerið
(án 0, ef með þarf) og svo símanúmerið.
2. Ýttu á hringitakkann til að hringja í númerið.
3. Ýttu á hætta-takkann til að slíta símtali (eða hætta við að hringja).
Það að ýta á hættatakkann lýkur alltaf símtali, jafnvel þó svo að annað forrit sé
opið.
Til að hringja úr Tengiliðum skaltu velja Valmynd > Tengiliðir. Flettu að nafninu.
Eða veldu leitarreitinn til að slá inn fyrstu stafi nafnsins og flettu að nafninu. Ýttu á
hringitakkann til að hringja í tengiliðinn. Ef þú hefur vistað nokkur númer fyrir
tengilið skaltu velja tiltekna númerið af listanum og ýta á hringitakkann.