Aðgerðir á snertiskjá
Banka og tvíbanka
Til að opna forrit eða aðra aðgerð á snertiskjánum smellirðu yfirleitt á skjáinn með
fingri eða skjápenna. En til að opna eftirfarandi atriði þarftu að tvíbanka á þau.
Mikilvægt: Aðeins skal nota skjápenna sem Nokia samþykkir til notkunar með
þessu tæki. Ef annar skjápenni er notaður getur það ógilt alla ábyrgð á tækinu og
skemmt snertiskjáinn. Forðast skal að rispa snertiskjáinn. Aldrei skal nota penna,
blýant eða aðra oddhvassa hluti til að skrifa á snertiskjáinn.
● Atriði á lista í forriti, svo sem Drög í möppulistanum í Skilaboðum.
Ábending: Þegar listaskjár er opnaður er fyrsta atriðið auðkennt.
Auðkenndi hluturinn er opnaður með því að banka einu sinni á hann.
● Forrit og möppur í valmyndinni þegar listaskjágerðin er notuð
● Skrá á skráarlista, til dæmis mynd á mynda og hreyfimyndaskjá í Galleríinu.
Ef þú bankar einu sinni á skrá eða svipaðan hlut opnast hann ekki heldur verður
hann auðkenndur. Til að sjá tiltæka valkosti fyrir hlutinn skaltu velja Valkostir
eða velja tákn af tækjastiku ef það er í boði.
Velja
Í þessum notendaleiðbeiningum er opnun forrita eða atriða með því að banka á
þau einu sinni eða tvisvar kallað að "velja". Ef velja þarf nokkra hluti í röð eru
valmyndaratriðin sem velja á aðskilin með örvum. Til að velja Valkostir >
Notendahandbók skaltu smella á Valkostir og síðan á Notendahandbók.
Draga
Til að draga seturðu fingurinn eða skjápennann á skjáinn og rennir honum yfir
skjáinn. Til að fletta upp eða niður á vefsíðu dregurðu síðuna með fingrinum eða
skjápennanum.
Tækið tekið í notkun
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
22
Strjúka
Til að sveifla rennirðu fingrinum eða pennanum hratt til vinstri eða hægri á
skjánum. Þegar mynd er skoðuð er hægt að skoða næstu eða fyrri mynd með því
að strjúka myndinni til vinstri eða hægri.
Strjúktu til að aflæsa snertiskjánum — Til að taka
snertiskjáinn úr lás ýtirðu á rofann eða
valmyndartakkann og strýkur frá hægri til vinstri.
Strjúktu til að taka snertiskjáinn úr lás og taka
hljóð af hringingu — Strjúktu frá hægri til vinstri til
að taka snertiskjáinn úr lás án þess að svara
símtalinu. Slökkt er sjálfvirkt á hringitóninum. Ýttu á hringitakkann til að svara
símtali eða á endatakkann til að hafna símtali.
Strjúktu til að svara símtali — Strjúktu frá vinstri til hægri til að svara símtali.
Strjúktu til að slökkva á hringingu — Strjúktu frá vinstri til hægri til að slökkva
á hringingu. Strjúktu frá hægri til vinstri til að stilla vekjara á blund.
Fletta
Til að fletta upp eða niður á lista sem er með flettistiku dregurðu til sleða
flettistikunnar.
Á sumum listaskjáum geturðu flett með því að setja fingurinn eða skjápennann á
atriði á listanum og draga það upp eða niður. Til að fletta gegnum tengiliði seturðu
fingurinn eða skjápennann á tengilið og dregur upp eða niður.
Ábending: Til að skoða stutta lýsingu á tákni seturðu fingurinn eða
skjápennann á það. Ekki eru til lýsingar á öllum táknum.
Baklýsing snertiskjás
Ef skjárinn er ekki notaður í tiltekinn tíma slokknar á bakljósi hans. Til að kveikja á
bakljósinu smellirðu á skjáinn.
Ef snertiskjárinn og takkarnir eru læstir kviknar ekki á ljósinu þótt smellt sé á skjáinn.
Til að taka skjáinn og takkana úr lás skaltu renna lásnum til.
Tækið tekið í notkun
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
23