Hlustað á útvarpið
Veldu Valmynd > Tónlist > Útvarp.
FM-útvarpið þarf annað loftnet en það sem er í þráðlausa tækinu. Samhæft höfuðtól
eða aukabúnaður þarf að vera tengdur tækinu ef FM-útvarpið á að virka rétt.
Þegar forritið er opnað í fyrsta sinn er hægt að velja að hafa stillt sjálfvirkt á nálægar
stöðvar.
Til að hlusta á næstu/fyrri stöð velurðu eða .
Til að taka hljóðið af útvarpinu velurðu .
Veldu Valkostir og svo úr eftirfarandi:
● Stöðvar — Til að sjá vistaðar útvarpsstöðvar.
● Stilla stöðvar — Til að leita að útvarpsstöðvum.
● Vista — Til að vista útvarpsstöð.
Tónlist
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
67
● Kveikja á hátalara eða Slökkva á hátalara — Til að kveikja eða slökkva á
hátalaranum.
● Aðrar tíðnir — Til að velja hvort útvarpið á að leita sjálfvirkt að betri RDS-tíðni
fyrir stöðina ef styrkur er lítill.
● Spila í bakgrunni — Til að fara aftur á heimaskjáinn og hafa kveikt á útvarpinu
í bakgrunninum.