Netvarpsstillingar
Til að opna Nokia Podcasting velurðu Valmynd > Tónlist > Podcasting.
Veldu tengi- og niðurhalsstillingar áður en þú notar Nokia Podcasting.
Tónlist
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
65
Hafðu samband við þjónustuveituna til að fá upplýsingar um skilmála og gjaldskrá
áður en aðrar tengiaðferðir eru notaðar. Til dæmis getur fastagjald leyft stórar
gagnasendingar fyrir eitt mánaðargjald.
Tengistillingar
Tengistillingum er breytt með því að velja Valkostir > Stillingar > Tenging og
úr eftirfarandi:
● Sjálfgef. aðgangsstaður — Veldu aðgangsstaðinn til að tilgreina tengingu við
internetið.
● Slóð leitarþjónustu — Tilgreindu hvaða leitarþjónustuveffang á að nota í leit.
Stillingar fyrir niðurhal
Stillingum fyrir niðurhal er breytt með því að velja Valkostir > Stillingar >
Niðurhal og úr eftirfarandi:
● Vista á — Tilgreindu staðinn þar sem netvörp eru vistuð.
● Uppfærslutími — Tilgreindu hversu oft netvörp eru uppfærð.
● Næsti uppfærsludagur — Tilgreindu dagsetningu næstu sjálfvirku uppfærslu.
● Næsti uppfærslutími — Til að tilgreina tíma fyrir næstu sjálfvirku uppfærslu.
Sjálfvirkar uppfærslur eiga sér bara stað ef ákveðinn sjálfgefinn aðgangsstaður
er valinn og Nokia Podcasting er í gangi. Ef Nokia Podcasting er ekki í gangi eru
sjálfvirkar uppfærslur ekki virkar.
● Takmörk niðurhals (%) — Til að tilgreina hlutfall minnis sem er ætlað fyrir
niðurhal á netvörpum.
● Ef efni fer yfir takmörk — Tilgreindu hvað á að gera ef niðurhalið fer yfir
hámarkið.
Það að stilla forritið á að sækja podcast sjálfkrafa getur falið í sér stórar
gagnasendingar um farsímakerfi þjónustuveitu. Upplýsingar um
gagnaflutningsgjöld fást hjá þjónustuveitum.
Til að setja aftur upp sjálfgefnar stillingar velurðu Valkostir > Upprunalegar
stillingar á stillingaskjánum.
Tónlist
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
66