Aðgangsstaðir fyrir pakkagögn
Veldu Valmynd > Stillingar og Tengingar > Nettengileiðir > Aðgangsstaður
og fylgdu leiðbeiningunum á skjánum.
Til að breyta pakkagagnaaðgangsstað skaltu opna einn aðgangsstaðahópinn og
velja aðgangsstað með merkingunni
.
Fylgdu leiðbeiningum þjónustuveitunnar.
Veldu úr eftirfarandi:
● Nafn aðgangsstaðar — Þú færð heiti aðgangsstaðarins frá þjónustuveitunni.
● Notandanafn — Notandanafn getur verið nauðsynlegt til að koma á
gagnatengingu og það fæst yfirleitt hjá þjónustuveitunni.
● Biðja um lykilorð — Ef þú þarft að slá inn lykilorðið í hvert skipti sem þú tengist
við miðlara eða ef þú vilt ekki vista lykilorðið í tækinu skaltu velja Já.
● Lykilorð — Lykilorð getur verið nauðsynlegt til að koma á gagnatengingu og
það fæst yfirleitt hjá þjónustuveitunni.
● Sannvottun — Veldu Örugg til að senda lykilorðið alltaf dulkóðað eða Venjuleg
til að senda lykilorðið dulkóðað þegar hægt er.
● Heimasíða — Sláðu inn veffangið eða númer skilaboðamiðstöðvar
margmiðlunarskilaboða, eftir því hvaða aðgangsstað þú vilt setja upp.
● Nota aðgangsstað — Veldu Eftir staðfestingu ef þú vilt að tækið biðji um
staðfestingu áður en tengingu er komið á um þennan aðgangsstað, eða
Sjálfvirkt ef þú vilt að tækið komi á tengingu um þennan aðgangsstað sjálfvirkt.
Veldu Valkostir > Frekari stillingar og svo úr eftirfarandi:
● Gerð símkerfis — Veldu hvaða internetsamskiptareglur á að nota þegar gögn
eru flutt úr eða í tækið. Aðrar stillingar velta á því hvaða gerð af símkerfi þú velur.
● IP-tala símans (aðeins fyrir IPv4) — Sláðu inn IP-tölu tækisins þíns.
Tengimöguleikar
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
84
● Nafnaþjónustur — Sláðu inn IP-tölu aðal- og aukanafnamiðlara ef
þjónustuveitan biður um það. Hafðu samband við internetþjónustuveituna til að
fá þessar tölur.
● Slóð staðgengilsmiðlara — Sláðu inn veffang proxy-miðlarans.
● Númer staðgengilsgáttar — Slá inn gáttartölu proxy-miðlarans.