Nokia 5228 - Búa til nýjan aðgangsstað

background image

Búa til nýjan aðgangsstað

Veldu Valmynd > Stillingar og Tengingar > Nettengileiðir.
Hægt er að fá aðgangsstaðastillingar í skilaboðum frá þjónustuveitu. Sumir eða allir

aðgangsstaðir gætu verið forstilltir fyrir tækið af þjónustuveitunni og því er ekki

víst að hægt sé að breyta þeim, búa þá til eða fjarlægja.

Tengimöguleikar

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

82

background image

Þegar einn af aðgangsstaðahópunum er opnaður ( , , ) er hægt að sjá hvers

konar aðgangsstaði er um að ræða:

táknar varinn aðgangsstað

táknar aðgangsstað fyrir pakkagagnatengingu

Nýr aðgangsstaður er búinn til með því að velja Aðgangsstaður. Tækið vill leita

að tiltækum tengingum. Þegar leitinni er lokið birtast tengingar sem eru tiltækar

og hægt er að samnýta með nýjum aðgangsstað. Ef þessu skrefi er sleppt ertu

beðinn um að velja tengingaraðferð og tilgreina nauðsynlegar stillingar.
Til að breyta stillingum aðgangsstaðar skaltu opna einn aðgangsstaðahópinn og

velja aðgangsstað. Fylgdu leiðbeiningum þjónustuveitunnar.
Heiti tengingar — Sláðu inn heiti fyrir tenginguna.

Gagnaflutningsmáti — Veldu gerð gagnatengingarinnar.
Það fer eftir því hvaða gagnatenging er valin hvaða stillingareiti er hægt að velja.

Fylltu út alla reiti sem eru merktir með Verður að tilgreina eða rauðri *. Aðra reiti

þarf ekki að fylla út nema þjónustuveitan biðji sérstaklega um það.
Til að hægt sé að nota gagnatengingu verður þjónustuveitan að styðja hana og, ef

með þarf, virkja hana fyrir SIM-kortið þitt.