Sýndarlyklaborð
Þú getur notað sýndarlyklaborðið á skjánum í landslagsstillingu.
Sýndarlyklaborðið er gert virkt með því að velja
>
QWERTY á öllum
skjánum.
Þegar sýndarlyklaborðið er notað á öllum skjánum er hægt að velja takkana með
fingrunum.
1 — Loka - Loka sýndarlyklaborðinu.
2 — Innsláttarvalmynd - Opna valmynd með valkostum fyrir snertiinnslátt og
skipanir eins og Tungumál texta. Til að setja inn broskarl velurðu Setja inn
broskarl .
3 — Sýndarlyklaborð
4 — Shift og hástafalás - Til að slá inn hástaf þegar skrifað er með lágstöfum, eða
öfugt, skaltu velja takkann áður en stafurinn er sleginn inn. Til að stilla á hástafalás
skaltu velja takkann tvisvar. Strik undir takkanum sýnir að hástafalás sé virkur.
5 — Stafir
6 — Tölustafir og sérstafir
7 — Kommur yfir stöfum
8 — Bilslá
9 — Færa - Færa bendilinn.
Textaritun
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
40
10 — Bakktakki
11 — Færslutakki - Til að færa bendilinn yfir í næstu línu eða innsláttarreit.
Viðbótaraðgerðir fara eftir því hvað verið er að gera (t.d. er hann notaður til að opna
í veffangsreit vafrans).
12 — Innsláttaraðferð - Velja innsláttaraðferð. Þegar smellt er á aðferð lokast
innsláttarskjárinn sem var upp og sá sem valinn var opnast.