Flýtiritun
Þegar orð er slegið inn í flýtiritun er einn talnatakki valinn fyrir hvern staf í orðinu.
Í flýtiritun er notuð innbyggð orðabók sem hægt er að bæta nýjum orðum inn í.
Flýtiritun er ekki í boði fyrir öll tungumál.
1. Kveikt er á flýtiritun fyrir alla ritla tækisins með því að velja
>
Kveikja á
flýtiritun.
2. Skrifaðu orð. Veldu t.d. 6 fyrir N, 6 fyrir o, 5 fyrir k, 4 fyrir i og 2 fyrir a til að skrifa
„Nokia“ þegar enska orðabókin er valin.
Orðið sem stungið er upp á breytist eftir hvern staf sem er valinn.
Textaritun
© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.
43
3. Ef ekki kemur upp rétt orð velurðu * endurtekið þar til rétt niðurstaða birtist. Ef
orðið er ekki í orðabókinni velurðu Stafa, slærð orðið inn á venjulegan hátt og
velur síðan Í lagi.
Ef ? birtist fyrir aftan orðið er það ekki að finna í orðabókinni. Orði er bætt inn í
orðabókina með því að velja *, slá orðið inn á venjulegan hátt og velja síðan Í
lagi.
4. Til að slá inn punkt velurðu *.
5. Til að setja inn bil velurðu 0.