Nokia 5228 - Ökutæki

background image

Ökutæki

Útvarpsbylgjur kunna að hafa áhrif á rafeindakerfi í vélknúnum ökutækjum, séu þau

ekki rétt upp sett eða ekki nægilega varin, svo sem rafeindastýrða eldsneytisgjöf,

rafeindastýrð hemlakerfi (með læsivörn), rafeindastýrða hraðastýringu og

loftpúðakerfi. Frekari upplýsingar er að finna hjá framleiðanda bílsins eða

tækjabúnaðarins.
Aðeins á að fela fagmönnum að gera við tækið eða setja tækið upp í ökutæki. Röng

uppsetning eða viðgerð kann að valda hættu og ógilda ábyrgðina. Ganga skal

reglulega úr skugga um að allur þráðlaus tækjabúnaður í ökutækinu sé rétt

uppsettur og vinni rétt. Ekki má geyma eða flytja eldfima vökva, lofttegundir eða

sprengifim efni í sama rými og tækið, hluta úr því eða aukabúnað með því. Hafa

skal í huga að loftpúðar blásast upp af miklu afli. Ekki koma tækinu eða fylgihlutum

fyrir á loftpúðasvæðinu.
Slökkva skal á tækinu áður en gengið er um borð í flugvél. Notkun þráðlausra

fjarskiptatækja í flugvél getur skapað hættu við stjórn flugvélarinnar og kann að

vera ólögleg.