Nokia 5228 - Neyðarsímtöl

background image

Neyðarsímtöl

Mikilvægt: Þetta tæki notar útvarpsmerki, þráðlaus staðarnet, kapalkerfi og

notendaforritaðar aðgerðir. Ef tækið styður símtöl á internetinu (netsímtöl) skaltu

bæði kveikja á farsímanum og á netsímtölum. Tækið reynir bæði að koma á

neyðarsímtölum í farsímakerfinu og um þjónustuveitu netsímtala ef bæði eru virk.

Ekki er hægt að tryggja tengingu við allar aðstæður. Því skyldi aldrei treysta

eingöngu á þráðlaust tæki ef um er að ræða bráðnauðsynleg fjarskipti, t.d. í

bráðatilvikum.
Neyðarsímtal:
1. Ef slökkt er á tækinu skaltu kveikja á því. Athugaðu hvort nægilegur sendistyrkur

sé fyrir hendi. Þú gætir einnig þurft að gera eftirfarandi atriði, allt eftir tækinu

þínu:
● Settu SIM-kort í tækið þitt ef það notar slíkt kort.
● Eyddu öllum takmörkunum sem þú hefur gert virkar í tækinu þínu.
● Breyttu sniðinu þínu úr sniði án tengingar í virkt snið.
● Ef skjárinn og takkarnir eru læstir skaltu renna til lásnum á hlið tækisins til

að opna þá.

2. Ýttu eins oft á endatakkann og þarf til að hreinsa skjáinn og gera tækið reiðubúið

fyrir símtöl.

3. Til að opna númeraval velurðu Sími eða .
4. Sláðu inn opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi svæði. Neyðarnúmer eru

breytileg eftir stöðum.

5. Ýttu á hringitakkann.

Vöru- og öryggisupplýsingar

© 2010 Nokia. Öll réttindi áskilin.

122

background image

Í neyðarsímtali þarf að gefa upp allar nauðsynlegar upplýsingar eins nákvæmlega

og kostur er. Þráðlausa tækið þitt kann að vera eina samskiptatækið á slysstað. Ekki

má slíta símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.